Skip to main content

Hagkvæmari tannlækningar í Gdansk

Fallegasta hafnarborg í Evrópu?

Sumir segja Gdansk í Póllandi vera fallegastu hafnarborg í Evrópu.

Dentineo Clinic Tannlæknastofan er staðsett í gamla bænum og því stutt að fara og njóta alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Gdansk er einstök borg sem býður upp á blöndu af sögu, menningu og náttúrufegurð. Gamli bærinn í Gdansk er þekktur fyrir myndrænar götur og sögufrægar byggingar.

Panta ferð til Gdansk

Fjölbreytt þjónusta er í boði

Tannhirðumeðferð

Fjarlægja tannstein, tannskán og mislitun með pússun eða með loft-bursta tækni með því að nota sértstakt efni á miklum þrýstingi.

Skipta út gömlum fyllingum

Það er nauðsynlegt að skipta út gömlum fyllingum þegar fyllingin hættir að vernda tönnina fyrir frekari skemmdum.

Fylling

Fylling er meðferð til að gera við snemmbúna skemmd í krónunni eða rotini.

Fegrandi plastblendis- fylling

Fegrandi plastblendisfyllingar veita góðan útlitslegan árangur. Fegrandi fyllingarefni eru framleidd í öllum litbrigðum.

Rótarfyllingar- meðferð

Merki um að þessi meðferð sé nauðsynleg er nístandi og mikill sársauki og tennur viðkvæmar. Í þessum tilfellum þarf að fjarlægja dauðu eða bólgnu ræturnar. Eftir vandlega hreinsun og sótthreinsun þá er sett fylling á tönnina.

Innfelling

Í tilfellum þegar skemmdin er svo umfangsmikil að plastblendisfylling dugar ekki þá er sérsniðin innfelling notuð í staðinn. Hægt að gera úr postulíni eða gulli.

Postulínskrónur og brýr

Algengast er að notast við krónur og brýr. Krónan er í grundvallaratriðum viðbót sem fest er við tönn sem bæði verndar hana og endurskapar útlit hennar. Brúin hefur sama hlutverk þegar fleiri en eina tönn vantar

Uppbygging beina

Þegar fólk hefur verið án tanna lengi er hugsanlegt að beinin hafi rýrnað. Í slíkum tilfellum þá er árangursríkt að byggja upp beinin sem gert er á tannlæknastöð okkar með sérstöku beinágræsluefni.

Kinnholufylling

Markmið þessarar skurðaðgerðar er að auka þykkt kjálkabeinsins.